Chrome-bækur læstar inn í skáp, nýtt gjald í höfnum, viðbrögð evrópskra ráðamanna við kosningum í Bandaríkjunum
From Spegillinn · 0:20:04
Show by RÚV
Í Hagaskóla í Reykjavík fá nemendur ekki lengur afhentar Chrome-bækur til afnota, heldur eru þær geymdar í læstum skápum og aðeins notaðar þegar þörf er á. Þess í stað er notast við bækur, ljósrit, blöð og blýanta. Rúnar Pálmason ræddi við Ómar Örn Magnússon skólastjóra Hagaskóla. Breytingu á lögum sem taka gildi um áramót og skylda hafnarstjórnir til að innheimta nýtt gjald af ákveðinni tegund skipa og báta, fylgir engin reglugerð. Þetta setur starfsfólk hafna um allt land í óþægilega stöðu, því leiðbeiningar um hvernig á hefja þessa nýju innheimtu eru ekki til. Ágúst Ólafsson fjallaði um málið og ræddi við Gyðu Mjöll Ingólfsdóttur, umhverfis- og gæðastjóra Faxaflóahafna. Þótt núverandi stjórnvöld í Bandaríkjunum njóti takmarkaðra vinsælda í Evrópu, urðu fáir þar til að lýsa opinberlega yfir gleði sinni yfir sigri Demókrata í þingkosningunum vestanhafs á þriðjudaginn. Donald Trump á tvö ár eftir af embættistíð sinni og Evrópuríki þurfa áfram á stuðningi hans og samvinnu að halda - ekki síst hvað varðar Úkraínu. Björn Malmquist fjallaði um þetta í Speglinum. Umsjón: Rúnar Pálmason Tæknimaður: Jón Þór Helgason
More episodes
- Úrslit þingkosninga í Bandaríkjunum, varnir gegn skipulagðri brotastarfsemi
- Chrome-bækur læstar inn í skáp, nýtt gjald í höfnum, viðbrögð evrópskra ráðamanna við kosningum í Bandaríkjunum
- Hlýnun umfram 1,5 óhjákvæmileg en hægt að halda undir 1,7 gráðu ef brugðist er við skjótt
- Síld, verðtrygging og sigurbogi
- Fylgi flokka og skipulögð brotastarfsemi
- Síld, verðtrygging og sigurbogi
- Chrome-bækur læstar inn í skáp, nýtt gjald í höfnum, viðbrögð evrópskra ráðamanna við kosningum í Bandaríkjunum
- Úrslit þingkosninga í Bandaríkjunum, varnir gegn skipulagðri brotastarfsemi
- Sala Fjarðarkaupa og kosningar í Bandaríkjunum
- Úrslit þingkosninga í Bandaríkjunum, varnir gegn skipulagðri brotastarfsemi
PodSearch is a free, independent podcast search engine. Read about PodSearch, the privacy policy or contact us.