Hanna Birna föstudagsgestur og matarspjall um mola og puru
From Mannlegi þátturinn · 0:50:00
Show by RÚV
Hanna Birna Kristjánsdóttir var föstudagsgestur Mannlega þáttarins í dag. Hún er fyrrum innanríkisráðherra, varaformaður Sjálfstæðisflokksins og borgarstjóri í Reykjavík. Eftir að hún sagði skilið við stjórnmálin hefur hún m.a. verið ráðgjafi á aðalskrifstofu UN Women í New York, verið formaður framkvæmdastjórnar Women Political Leaders (WPL) og verið í forsvari fyrir alþjóðlega ráðstefnu kvenleiðtoga sem haldin hefur verið í Hörpu. Hanna Birna er fædd og uppalin í Hafnarfirði og við spjölluðum við hana um æskuna og uppvöxtinn, skólagönguna, námið í Edinborg og svo sagði hún okkur frá því hvað hún er að gera í dag. Matarspjallið var svo auðvitað á sínum stað og það var þungt hljóð í Sigurlaugu Margréti þegar hún ræddi um þróun makkintosh molanna. Svo ræddum við einu sinni sem oftar um purusteikina og hvað þarf til að gera vel heppnaða, stökka puru. Tónlist í þættinum í dag: Klukknahljóm / Þórir Baldursson (erlent lag, útsetning Þórir Baldursson og Gunnar Þórðarson) Hótel Jörð / Vilborg Árnadóttir, Heimir og Jónas (Heimir Sindrason og Tómas Guðmundsson) Áfram stelpur / Áfram stelpur hópurinn - Anna Kristín Arngrímsdóttir, Bríet Héðinsdóttir, Guðrún Alfreðsdóttir, Kristín Á. Ólafsdóttir, Margrét Helga Jóhannsdóttir, Sigrún Björnsdóttir og Steinunn Jóhannesdóttir (Dagný Kristjánsdóttir, Gunnar Edander og Kristján Jóhann Jónsson) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR
More episodes of Mannlegi þátturinn
More episodes
- Valur Freyr föstudagsgestur og meira með Helgu Sigurðar í matarspjallinu
- Valur Freyr föstudagsgestur og meira með Helgu Sigurðar í matarspjallinu
- Skotganga Ingu og Snorra, Glóð um jólin og Jónatan um Pétur Kristjánsson
- Skotganga Ingu og Snorra, Glóð um jólin og Jónatan um Pétur Kristjánsson
- Búseti 40 ára, þvottavélavinkill og Skúli lesandinn
- Aðgengi hjólastóla, vinkill og Sólveig Auðar lesandinn
- Auglýsa eftir gömlum fötum, lífið fyrir norðan og heilsuspjallið
- Með opin augu, einangrun eldri borgara, Alzheimer
- Vaðlaheiðagöng, vinkill um mælieiningar og Þröstur lesandinn
- Einelti á vinnustað, Giggó og Þalöt
PodSearch is a free, independent podcast search engine. Read about PodSearch, the privacy policy or contact us.