Eldfim ummæli Rutte, stríðið um sannleikann og átök um Þjóðaróperu

From Spegillinn · 0:20:10

Show by RÚV

Ummæli Mark Rutte, framkvæmdastjóra Atlantshafsbandalagsins, í gær hafa vakið athygli - Rutte sagði það draumsýn að ríki Evrópu eða Evrópusambandið gætu séð um eigin varnir án Bandaríkjanna. Björn Malmquist fréttamaður heyrði ummælin falla og fylgdist með umræðunum í framhaldinu. Það er ekkert nýtt að stjórnvöld, stórfyrirtæki og aðrir hagsmunaaðilar ljúgi að almenningi í gegnum fjölmiðla sem þeir hafa greiðan aðgang, geta ráðskast með og jafnvel stjórnað í einu og öllu. Það sem er nýtt er tæknin sem nú gerir þessum aðilum kleift að framleiða og dreifa falsfréttum, djúpfölsunum og gegndarlausum áróðri yfir fólk og fjölmiðla í stærri stíl og stríðari straumi en nokkru sinni fyrr, þar sem vægi staðreynda fer ört minnkandi og æ erfiðara reynist að greina satt frá lognu. Íslenska óperan afturkallaði vilyrði um stofneign til þjóðaróperunnar og keypti ríkið í staðinn af henni nótur, búninga og hljóðfæri fyrir á annan tug milljóna

More episodes of Spegillinn

More episodes

PodSearch is a free, independent podcast search engine. Read about PodSearch, the privacy policy or contact us.