Hvetja karla að fara í PSA próf, fjöltyngi og annarsmálsfræði og Einar í veðurspjallinu

From Mannlegi þátturinn · 0:50:00

Show by RÚV

Krabbameinsfélagið Framför, Félag karla með krabbamein í blöðruhálskirtli og aðstandenda, vill koma inn sterkri vitundarvakningu hjá körlum að fara í PSA-próf til að sjá hvort það geti verið vísbending um blöðruhálskirtilskrabbamein. Félagið fékk nóvember sem átaksmánuð og kallar hann Bláan nóvember og til fjármögnunar er Blái trefilinn seldur og ýmislegt fleira. Stefán Stefánsson og Guðmundur Oddgeirsson frá félaginu komu í þáttinn í dag. Hópur fjöltyngdra nemenda í íslenskum skólum fer sívaxandi. Við töluðum í dag við Birnu Arnbjörnsdóttur, prófessor emeritus í annarsmálsfræðum við Mála- og menningardeild Háskóla Íslands. Birna hefur stýrt rannsóknarverkefnum um máltileinkun, fjöltyngi og sambýli tungumála, hún heldur fyrirlestur í Veröld, húsi Vigdísar í dag þar sem hún mun fjalla um niðurstöður rannsókna á sambýli íslensku og ensku í Vesturheimi og á Íslandi og svo sagði hún okkur frá nýútkominni bók, Fjöltyngi á Íslandi, Inngangur að annarsmálsfræðum þegar hún komi í þáttinn í dag. Svo kom Einar Sveinbjörnsson til okkar í veðurspjallið. Í dag sagði hann okkur frá enn einu veðurmetinu, alheimsmet var slegið um helgina um það leyti sem loftslagsráðstefnunni í Ankara lauk með hálfgerðum vonbrigðum. Svo var það grjóthrun, en eftir að hlýnaði um helgina hefur grjóthrun á vegi verið með meira móti og Vegagerðinn haft í nægu að snúast við að ýta hnullungunum frá. Og í lokin skoðaði Einar spár fyrir næstu daga. Tónlist í þættinum: Gott að þú ert hér / Stefán Hilmarsson (Ástvaldur Traustason, texti Stefán Hilmarsson) Núna / Pálmi Gunnarsson (Magnús Eiríksson) Dýrð í dauðaþögn / Ásgeir Trausti (Ásgeir Trausti, texti Júlíus Aðalsteinn Róbertsson) Guð og ég / South River Band (Ólafur Þórðarson, texti Kormákur Bragason) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR

More episodes of Mannlegi þátturinn

More episodes

PodSearch is a free, independent podcast search engine. Read about PodSearch, the privacy policy or contact us.