Þáttur #14 - Eva Dögg Sigurðardóttir

From Félagsráðgjafahlaðvarpið · 00:27:33

Show by Félagsráðgjafafélagið

Í þessum þætti ræðum við við Evu Dögg Sigurðardóttur félagsráðgjafa og rannsakanda um áhugaverða rannsókn á tilkynningum til barnaverndar á fyrstu mánuðum COVID-19 faraldursins.Þegar samfélagið lokaðist, skólar skertu starfsemi sína og fólk var hvatt til að halda sig heima vöknuðu víða um heim áhyggjur af stöðu barna. Í rannsókn sinni skoðar Eva Dögg hvort ákall stjórnvalda um að ''Við séum öll barnavernd'' hafi haft áhrif á hegðun almennings og hvort hið óformlega barnaverndarkerfi - nágrannar, ættingjar og aðrir borgarar - hafi brugðist við þegar hefðbundin verndarkerfi veikust.Niðurstöðurnar eru athyglisverðar og varpa ljósi á samspil samfélagslegrar ábyrgðar og tilkynningarskyldu og verndar barna á tímum mikillar óvissu.

More episodes of Félagsráðgjafahlaðvarpið

More episodes

PodSearch is a free, independent podcast search engine. Read about PodSearch, the privacy policy or contact us.