Manngildi - 5. þáttur: Þegar móðir ákveður að breyta kerfinu
From Samstöðin · 00:58:30
Show by Samstöðin
Mánudagur 23. nóvember Manngildi - 5. þáttur: Þegar móðir ákveður að breyta kerfinu Gestur Manngildis að þessu sinni er Vigdís Gunnarsdóttir, lögfræðingur, móðir einhverfs drengs og stofnandi Þorláksskóla. Í þættinum kynnumst við Vigdísi og ræðum hvernig reynsla hennar af þjónustukerfinu varð að baráttu fyrir betri tækifærum einhverfra barna. Við fjöllum um Biðlisti.is, sem hún stofnaði ásamt öðrum mæðrum til að vekja athygli á löngum biðlistum eftir greiningu og þjónustu, og Þorláksskóla, nýjan sérhæfðan skóla fyrir einhverf börn. Einnig ræðum við stöðu einhverfra barna í íslensku skólakerfi, skóla án aðgreiningar, rétt foreldra til að velja viðeigandi úrræði og hvað þurfi að breytast til að tryggja öllum börnum menntun við hæfi. Persónulegt samtal um móðurhlutverkið, baráttuna við kerfið og kjarkinn til að skapa nýjar lausnir. Manngildi – Samtal sem breytir samfélagi.
More episodes
- Þriðjudagur 24. nóvember - Trump, múslimahatur, veðrið, vísindi og löggan
- Bókaborðið - 10. þáttur: Tengdasynir, söngur um haust og klefinn
- Rauða borðið 23. nóv - Hagaskóli. Palestína, lyfjasúpa, biðlistar, bækur og krabbamein
- Synir Egils 22. nóv - Hallalaus fjármál, atvinnuleysi, hjólabúar, leiðtogafundur og biðlistar
- Hvernig í ósköpunum enduðum við hér? - 2. þáttur: Ósköpin
- Rauða borðið - Helgi-spjall: Ómar Stefáns II
- Rauða borðið - Vikuskammtur: Vika 47
- Rauða borðið 19. nóv - Evrópa, þrír pólar, lögfræði, trans, háskólar, bíó, Balí og ópera
- Rauða borðið 18. nóv - Öldrunarþjónusta, gervigreind, geðlæknir, trans, tónlist og Geir Ólafs
- Græna borðið 29. þáttur - Aktívismi unga fólksins
PodSearch is a free, independent podcast search engine. Read about PodSearch, the privacy policy or contact us.