Rauða borðið 23. nóv - Hagaskóli. Palestína, lyfjasúpa, biðlistar, bækur og krabbamein

From Samstöðin · 04:02:05

Show by Samstöðin

Mánudagur 23. nóvember Hagaskóli. Palestína, lyfjasúpa, biðlistar, bækur og krabbamein Voru vinnubrögð fjölmiðla við hæfi í fréttaflutningi af svokölluðu Hagaskólamáli? Friðrik Þór Friðriksson, Steingerður Steinarsdóttir og Ágúst Borgþór Sverrisson blaðamenn leitast við að svara þeirri spurningu í samtali við Björn Þorláksson og eru ekki á einu máli. Gunnar Smári slær á þráðinn til Palestínu þar sem Qussay Odeh segir okkur fréttir frá Palestínu. Í viðtali Ásdísar Ólsen við Önnu Birnu Almarsdóttur, prófessor í lyfjafræði við Kaupmannahafnarháskóla ræðir hún um ofnotkun svefnlyfja og magasýrulyfja á Íslandi. Gunnar Smári ræðir við Rúnar Vilhjálmsson prófessor í félagsfræði um biðlista í heilbrigðiskerfinu, áhrif á fólk, kerfið og samfélagið og hvað gæti verið til bóta. Sigurjón Magnús ræðir hjónin María Gunnarsdóttir og Gunnar Bender sem hafa sent frá sér bækur fyrir þessi jól og í lokin koma karlar að Rauða borðinu til að ræða um karla og krabbamein: Guðmundur Oddgeirsson, Stefán Stefánsson, Gunnar Skagfjörð Gunnarsson og Finnbogi Gústafsson segja Gunnari Smára frá áhrifum krabbameins á karla og hvers vegna þeir koma oft seint í rannsóknir.

More episodes of Samstöðin

More episodes

PodSearch is a free, independent podcast search engine. Read about PodSearch, the privacy policy or contact us.